Barnabókaflokkur
Sibba subb
- Höfundur
- Helgi Jónsson
- Myndskreyting
- Hrannar Atli Hauksson
Nýr myndskreyttur barnabókaflokkur um krakka sem fá eitthvað á heilann!
Sibba er venjuleg stelpa, vill helst leika sér úti í sandkassa eða drullupolli. Hún er nefnilega mikil subba, en það finnst mömmu hennar ekki gott. „Ég er Sibba subb!“ segir stelpan stolt.
Líflegar og bráðsmellnar teikningar eftir Hrannar Atla Hauksson. Stórskemmtileg bók fyrir yngstu lesendurna eftir Helga Jónsson. Tilvalin bók fyrir unga lesendur.