Kápa bókarinnar Utanveltumaður

Úr útgáfunni

Utanveltumaður

Saga Frímanns B. Arngrímssonar

Höfundur
Valdimar Gunnarsson

Hér er í fyrsta sinn gerð grein fyrir allri ævi og störfum þessa sérkennilega manns, sem vildi rafvæða Ísland, langt á undan öllum öðrum.

Frímann lauk háskólanámi í Kanada og starfaði á vegum Kanadastjórnar. Síðar vann hann á tilraunastofum í Bandaríkjunum og í Bretlandi. Eftir skamma dvöl þar fór hann til Frakklands þar sem bjó við kröpp kjör í 17 ár. Heim kominn til Íslands barðist hann hatrammlega fyrir hugsjón sinni að rafvæða Ísland en allir ráðamenn snerust gegn honum og lítilsvirtu tillögur hans.

Um höfundinn

Valdimar Gunnarsson starfaði við kennslu við Menntaskólann á Akureyri í 40 ár.